Harmar að hafa tekið við

Framkvæmdastjóri Sjálfstæðisflokksins, segist harma þau mistök sem urðu þegar flokkurinn tók við fjárframlögum frá Neyðarlínunni.

Spurt er? Hringdi einhver fyrir hönd Sjálfstæðisflokkins í Neyðarlínuna og bað um styrk eða hringdi Neyðarlínan í Sjálfstæðisflokkinn?  Hver svaraði fyrir Neyðarlínuna ef það var hringt í þá?  Var þetta neyðartilvik?  Mér sýnist á taprekstri flokkana að svo hafi verið, þannig að þetta framlag var fyllilega réttlætanlegt og vonandi hefur þetta hjálpað eitthvað til.

Kveðja Benedikt Kaster, p.s mig vantar pening ó já ég hringi bara í 112.

Ég hélt svo að Neyðarlínan væri meira í því að svara en hringja:)


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband